Í þessum þætti af Íslenska draumnum ræðir Sigurður við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra Fenris Creations, áður CCP, sem hefur staðið í brúnni hjá einu þekktasta tölvuleikjafyrirtæki Íslands í meira en tvo áratugi. Hilmar segir frá fyrstu tölvunni sem hann safnaði fyrir með blaðburði, lærdómsárunum hjá OZ og ævintýrinu á bak við EVE Online. Hann ræðir opinskátt um tímabil þegar starfsfólk vann mánuðum saman án launa, velgengnina sem leiddi til ofþenslu og erfiðu ákvarðanirnar sem fylgdu í kjölfarið. Einnig er rætt um leiðina úr forritun í forstjórastól, mikilvægi þess að skilja eigin tilfinningar og nýjan kafla þar sem EVE gæti gegnt lykilhlutverki í þjálfun og þróun gervigreindar.