HomeÞættirÞættir39 – Emin Kadri

39 – Emin Kadri

Í þessum þætti af Íslenska Draumnum er viðmælandinn Emin Kadri, 22 ára atvinnuboxara sem þrátt fyrir ungan aldur er þegar orðinn þekkt nafn í íslenskri íþróttasenu. Emin hefur barist tvo atvinnubardaga – og unnið þá báða – og margir sjá hann sem einn efnilegasta hnefaleikamann Íslands.

Ferill Emin hófst snemma. Hann byrjaði í hnefaleikum aðeins 10 ára gamall og fann sig strax í þessum krefjandi einstaklingsíþróttum. „Ég prófaði fótbolta og handbolta eins og flestir krakkar, en fann mig aldrei þar. Einstaklingsíþrótt hentar mér betur. Svo hafði ég bara gaman af því að slást.“ segir Emin í þættinum. Eftir farsælan feril í áhugamannahnefaleikum, með um 50 bardaga á bakinu, tók hann stökkið yfir í atvinnumennskuna. Í dag æfir hann á Íslandi og í Las Vegas með Top Rank, einum virtasta hnefaleikaklúbbi heims, og leggur hart að sér til að komast á toppinn.

Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu mikilvæg markmiðasetning er ekki bara að setja sér markmið, heldur að brjóta þau niður í skref og hafa skýra sýn á það sem þarf að gera dag frá degi. Emin talar opinskátt um það hvernig þessi nálgun hefur hjálpað honum að halda fókus, jafnvel þegar mótlæti hefur mætt honum. „Þú verður að hafa skýr markmið og fylgja þeim eftir, 100%.“. Eitt hans stærsta markmið er að stækka boxsenuna á Íslandi og koma með stóra bardaga heim. Hugarfarið er líka stór hluti af því sem Emin leggur áherslu á – hvernig sjálfstraust, þrautseigja og geta til að standa með sjálfum sér skipta sköpum, ekki bara í bardaganum sjálfum heldur í öllum undirbúningi, í æfingum og þegar hlutirnir ganga ekki eins og ætlað var. Hann talar líka um mikilvægi þess að hafa gott teymi í kringum sig sem styður mann – en á endanum verður árangurinn alltaf á ábyrgð einstaklingsins sjálfs.

En þátturinn er ekki bara um íþróttina sjálfa Emin gefur hlustendum einnig innsýn í viðskiptahlið hnefaleikanna. Hann útskýrir hvernig atvinnuboxarar skapa sér tekjur, hvaða tegundir af samningum eru í boði, hvernig bardagar eru skipulagðir og hvað þarf til að byggja upp vörumerki í kringum sjálfan sig sem íþróttamann. Fyrir þá sem hafa áhuga á viðskiptum, frumkvöðlastarfi eða hvernig hægt er að nýta sér ímynd og árangur til að skapa verðmæti, er þetta ótrúlega áhugavert sjónarhorn sem sýnir að hnefaleikar eru jafn mikið viðskipti og þeir eru íþrótt.

Þetta er þáttur sem veitir innblástur ekki bara fyrir áhugafólk um hnefaleika heldur fyrir alla sem stefna að því að ná árangri í lífinu eða byggja upp eitthvað sjálfir. Emin Kadri er lifandi dæmi um hvað gerist þegar metnaður, aga og skýr framtíðarsýn fara saman ungur maður sem er staðráðinn í að fara alla leið og, á sama tíma, lyfta íslensku boxsenunni á næsta stig. Hlustendur sem hafa áhuga á því hvernig árangur verður til hvort sem það er í íþróttum eða viðskiptum ættu ekki að láta þennan þátt fram hjá sér fara.